Knattspyrnudeild FH og LifeTrack undirrituðu á dögunum samstarfssamning sem miðar að því að styðja við heilsu, næringu og frammistöðu leikmanna meistaraflokks karla FH á yfirstandandi keppnistímabili í Bestu deildinni.. Samstarfið hófst fyrir nokkrum mánuðum og var gert opinbert í dag. FH er á góðu skriði í Bestu deildinni, liðið er taplaust í níu leikjum í deildinni og komst í gær upp úr fallsæti í fyrsta sinn frá því snemma móts.