Fjarskiptakerfi hafa verið styrkt á Reykjanesi, Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum til að mæta þeim mikla fjölda sem ætlað er að heimsæki þessa staði á miðvikudag vegna almyrkva á sólu.„Við teljum að kerfin séu undir þetta búin,“ segir Sigurður Ingi Hauksson, forstöðumaður dreifikerfa hjá Neyðarlínunni.Neyðarlínan minnir á varanúmerið 599-0112 sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. Varanúmerið er nú auglýst sérstaklega á SafeTravel.is, upplýsingavef fyrir ferðamenn á Íslandi. VON Á MIKLUM FJÖLDA VÍÐA „Neyðarlínan hefur síðan snemma síðastliðinn vetur verið í mjög góðu samstarfi við almennu fjarskiptafélögin við að vinna að því að styrkja og efla farsímakerfin sérstaklega og fjarskiptakerfi neyðar- og öryggissamskipta syðst á Vestfjörðum og þar um slóðir,“ segir S