Moses Hightower eignast vini

Hljómsveitin Moses Hightower er farin að nálgast 20 árin en hún var stofnuð í Reykjavík 2007 af þeim Magnúsi Trygvason Eliassen, Andra Ólafssyni og Steingrími Karl Teague og hefur gefið út um það bil fimm plötur.Á plötunni Moses Hightower og vinir má finna helstu samstarfstónsmíðar sveitarinnar með öðru tónlistarfólki í áranna rás – í fyrsta sinn á áþreifanlegu formi.Tvö lög eru áður óútgefin, Húsið mitt, ásamt Kött Grá Pjé og elsta lagið á plötunni, Steininn úr, samdi sveitin og tók upp í samstarfi við hiphop-gengið Forgotten Lores árið 2011.Restin af lagalistanum endurspeglar svo bróðurpartinn af útgefnum smáskífum sveitarinnar frá því að platan Lyftutónlist kom út.Daníel Jón Baróns ræddi við Moses Hightower um plötu vikunnar á Rás 2, Moses Hightower og vinir, sem kemur út í ágúst.
Moses Hightower eignast vini

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd