Arnar Eyfjörð Jóhannsson hefur skrifað undir eins árs samning við Grindavík. Arnar er þriðji markvörður liðsins en hann er fæddur árið 2008. Ásamt því hefur hann leikið með sameinuðu liði Njarðvíkur/Grindavíkur/Víðis í 2. flokki. Hann hefur verið skráður í Grindavík frá 2019 en þar áður var hann í KA.