Best að vera heima yfir almyrkvann – Annars gott að undirbúa sig vel

Búast má við umferðartöfum víða á vestanverðu landinu á miðvikudag vegna almyrkva á sólu. Fólk er hvatt til að njóta myrkvans að heiman. Standi til að ferðast er mikilvægt að undirbúa ferðalagið vel og reikna með töfum.Aðeins tveir dagar eru þar til almyrkvi á sólu verður sjáanlegur á vestanverðu landinu. Skyggni verður einna best á Vestfjörðum samkvæmt veðurspám.Almannavarnir hvetja fólk til að fylgjast með myrkvanum að heiman. Leggi það í ferðalög sé mikilvægt að skipuleggja þau vel og reikna með töfum í þjónustu og á umferð. „MIKILL UMFERÐAÞUNGI“ „Okkar skilaboð hafa verið hingað til og verða áfram að njóta þessa viðburðar heima hjá sér og sérstaklega á stóru þéttbýlissvæðunum á vesturhluta landsins,“ segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.„Ef
Best að vera heima yfir almyrkvann – Annars gott að undirbúa sig vel

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd