Grindhval rak á dögunum á land í Bitrufirði á Ströndum, gegnt Óspakseyri. Lögreglan á Vestfjörðum fékk tilkynningu um rekann í gær.Sverrir Daníel Halldórssson, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir að miðað við hvað hvalurinn er ferskur þá hafi hann ekki verið þarna í marga daga. „Það er fljótt að sjá á þeim.“Það er „ekki óalgengt“ að grindhvali reki á land, að sögn Sverris.Hann segir það í höndum landeigandans að ákveða næstu skref. Fyrsta val sé alltaf að láta hræið liggja í fjörunni.„Þetta hefur gerst í árþúsundir og er bara náttúrulegur atburður,“ segir Sverrir. Hvað Hafrannsóknastofnun varðar þá er það í hennar verkahring að taka sýni og mælingar úr dýrinu. Það er þó ekki útséð með að sýni verði tekið úr þessu hræi.„Með nokkuð algengar tegundir erum við ekki að leggja mikið á ok