Undir regnboganum er skemmtiþáttur í tilefni Hinsegin daga í Reykjavík þar sem hinsegin mannlífi og menningu er gert hátt undir höfði. Snæ Humadóttir, Jóhannes Þór, Ugla Stefanía og Ragnhildur Sverrisdóttir settust í sófann með Sigga Gunnars, stjórnanda þáttarins, og voru þar sem fulltrúar hinsegin fjölskyldunnar. Þau ræddu samstöðuna, bakslagið og flest það sem tengist hinseginleikanum. ÞAÐ ÞARF AÐ SÆTTAST VIÐ SJÁLFAN SIG TIL AÐ GETA SAGT ÖÐRUM HVER MAÐUR ER Þegar Jóhannes er spurður hvernig það var að koma út úr skápnum segir hann að fólk sem ekki hefur verið í þeirri stöðu eigi erfitt með að skilja hvaða styrks það krefst að gera það. > Sama í hvaða aðstæðum fólk er eða hvernig fjölskyldan eða samfélagið er. Það er þetta að sættast að sjálfan sig nægilega til að geta sagt öðrum hver