Vestri tilkynnti í dag að brasilíski varnarmaðurinn Edson hafi verið seldur frá félaginu og félagið sem kaupir hann er Qabala IK í Aserbaísjan. Qabala er í úrvalsdeildinni í Aserbaísjan og spilar þar m.a. við Qarabag sem Vestri spilaði við í forkeppni Evrópudeildarinnar í sumar. Væntanlega hafa menn frá Qabala fylgst með honum í því einvígi. Ekki er greint frá því hvert kaupverðið er. Edson er 24 ára og gekk í raðir Vestra fyrir tímabilið. Hann lék alls 21 leik með Vestra, þar á meðal alla fjóra Evrópuleikina. Áður hafð hann spilað í Brasilíu.