Umfangsmikil leit farin af stað þegar báturinn fannst

Sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar hafa fundið lítinn skemmtibát sem leitað var að um hádegisbilið í dag. Hann lagði úr höfn í Reykjavík rétt fyrir klukkan 10 með tvo um borð og ekkert hafði heyrst frá skipverjum í töluverðan tíma. Báturinn fannst loks úti af Syðra Hrauni. Vísir greindi fyrst frá leitinni.Leitin var orðin afar umfangsmikil þegar loks heyrðist frá þeim sem voru um borð skömmu eftir klukkan 12:30, segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Flugvél gæslunnar, TF-SIF, var notuð við leitina ásamt björgunarskipi og þyrlan var við það að fara af stað þegar fólkið lét vita af sér. KOM EKKI AUGA Á BÁTINN Litlum skemmtibátum er ekki skylt að vera með sjálfvirkan staðsetningarbúnað. Ásgeir segir að venja sé að sjófarendur láti venjulega vita af ferðum sínum á um
Umfangsmikil leit farin af stað þegar báturinn fannst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd