Uppfinningamaðurinn sem bjó í þrjú ár á hóteli á Akureyri: „Hann var fólki hér að einhverju leyti ráðgáta“

„Þessi maður, hann bara kemur allt í einu, lendir á Akureyri, gengur inn á besta hótel staðarins, pantar sér þar tvö herbergi og svo er hann bara þar í þrjú ár, inni á þessu hóteli, og er að reyna að hjálpa fólki,“ segir Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og rithöfundur. Hann ræðir þarna um þýsk-bandarískan uppfinningamann, Georg Schrader, sem bjó síðustu þrjú æviárin á Akureyri í upphafi síðustu aldar.Fyrir tæpum 20 árum stóð Ásgeir að endurútgáfu bókar í viðskiptafræði sem Schrader skrifaði á Íslandi og skrifaði formála. Bókin heitir Heilræði fyrir unga menn í verslun og viðskiptum.Nafn Schraders er heimsþekkt vegna samnefnds ventils sem hann bjó til ásamt föður sínum í Bandaríkjunum undir lok 19. aldar. Hann efnaðist vel á þessum ventli sem enn þann dag í dag er notaður á reiðhjólum, bifr
Uppfinningamaðurinn sem bjó í þrjú ár á hóteli á Akureyri: „Hann var fólki hér að einhverju leyti ráðgáta“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd