Ísland myndi binda trúss sitt við Evrópusambandið í viðskiptamálum og setja mögulega fríverslunarsamninga á ís ef ákveðið verður að hefja aðildarviðræður að nýju. Þetta kemur fram í Dagmálum þar sem Magnús Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, ræðir um þjóðaratkvæðagreiðsluna.