Áður fyrr varð fólk oft óttaslegið þegar sólin, lífgjafi þess, virtist skyndilega hverfa af himninum.Þá reyndi fólk að skilja hvað var að gerast með því að segja sögur. Um dreka, úlfa, eldhunda, birni, eða aðrar kraftmiklar verur, sem oft átu sólina en skiluðu henni alltaf aftur, sem betur fer.Í heimsreisu Þjóðsögukistunnar á Rás 1 var stoppað á ýmsum stöðum; Íslandi, Kína, Indlandi, Mesópótamíu til forna, Kóreu, Ítalíu og víðar í veröldinni. SÓL- OG TUNGLMYRKVAR GÓÐUR TÍMI TIL AÐ LEYSA RIFRILDI Batammariba-fólkið í norðvesturhluta Afríku taldi sólmyrkva merki um að sólin og tunglið væru að rífast. Eina leiðin til að stöðva rifrildið var að fólk niðri á jörðinni leysti úr öllum sínum deilum og kæmi þannig á jafnvægi. Enn í dag eru sól- og tunglmyrvar taldir góður tími til að leysa rifri