Það er tiltölulega fyrirsjáanlegt hver viðbrögð mannfólks verða þann 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina algjörlega og við upplifum örstutta nótt. Fólk mun reka upp stór augu, hlæja og einhverjir munu án efa fella tár. Hvernig dýr munu bregðast við er ekki eins augljóst.