Skagamenn hafa skilað inn þriggja ára samningi Tryggva Hrafns (Staðfest)

Tryggvi Hrafn Haraldsson skrifaði í sumar undir samning við ÍA sem tekur gildi eftir tímabilið. Fóbolti.net greindi fyrst frá því 8. júlí. Hann verður samningslaus eftir tímabilið og mátti því ræða við önnur félög þegar sex mánuðir eða minna voru eftir af samningnum. Rætt hefur verið um möguleikann á því að Tryggvi verði keyptur til ÍA strax í glugganum en einungis rúmir tveir sólarhringir eru eftir af honum og ólíklegt að eitthvað gerist úr þessu. Tryggvi sagði sjálfur í gær, eftir leikin gegn Breiðabliki, að hann búist við því að klára tímabilið hjá Val.
Skagamenn hafa skilað inn þriggja ára samningi Tryggva Hrafns (Staðfest)

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd