Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum sem er birt á íslensku, ensku og pólsku.„Aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ og þrjár vettvangsstjórnir verða starfræktar á svæðinu til að tryggja skilvirka samhæfingu viðbragðsaðila og viðbrögð við mögulegum atvikum.“ HÆGT AÐ FYLGJAST MEÐ HEIMA Lögreglan minnir íbúa á að almyrkvinn sést vel frá heimilum í þéttbýli á Reykjanesskaga. Því sé ekki nauðsynlegt að leggja í langferð til að njóta sjónarspilsins.„Sveitarfélögin á svæðinu hafa jafnframt komið upp safnstöðum á völdum stöðum þar sem fólk getur komið saman og fylgst með