Verkalýðshreyfingin segir að stjórnvöld og atvinnurekendur verði að axla ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípa til aðgerða. Að öðrum kosti verði kjarasamningum sagt upp.Í grein sem sex forystumenn í hreyfingunni skrifa í dag segir að núgildandi kjarasamningar hafi verið gerðir á grundvelli loforða sem áttu að lækka verðbólgu og vexti. Þau loforð hafi verið þverbrotin.Samningarnir voru undirritaðir í mars 2024 og gilda út janúar 2028. Hins vegar er hægt að segja þeim upp í lok mánaðar ef verðbólga mælist yfir 4,7% við næstu verðbólgumælingu, sem von er á 27. ágúst. Allar líkur eru á að verðbólgan verði yfir mörkunum.„Við höfum kallað eftir því að ríki og sveitarfélög skuldbindi sig til að frysta sínar gjaldskrár. Þau hækka gjaldskrár að lágmarki í samræmi við verðbólgu. Þetta verður bar