Nágrannar sáu dökkklædda menn ganga að húsinu

Lögregla verst allra fregna af manndrápi á Kársnesi í Kópavogi í gær. Nágrannar sem fréttastofa talaði við segjast hafa séð tvo dökkklædda menn koma út úr bíl í götunni og ganga að húsinu. Um fimmtán mínútum síðar hafi lögreglan verið komin á vettvang.Lögregla vildi hvorki staðfesta hvort hinn látni væri íslenskur eða erlendur ríkisborgari eða hvort hann hafi búið í húsinu eða verið aðkomumaður.Í tilkynningu í gær segir að maður hafi orðið fyrir alvarlegari líkamsárás og látist síðar á Landspítalanum. Nokkrir voru handteknir, einn skömmu eftir atvikið og nokkrir til viðbótar í aðgerðum í austurhluta Reykjavíkur.Lögreglan segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort óskað verði eftir gæsluvarðhaldi yfir þeim handteknu.
Nágrannar sáu dökkklædda menn ganga að húsinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd