Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Bresku-Kólumbíu í Kanada eftir að þúsundir manna þurftu að yfirgefa heimili sín vegna ört vaxandi skógarelds. Einn hefur látist í eldinum sem hefur meira en tvöfaldast að umfangi frá því hann uppgötvaðist á föstudag.