Menntamálaráðuneytið birti í sumar yfirlit yfir dreifingu lokaeinkunna í grunnskólum. Myndin sem þar blasir við er sannarlega umhugsunarverð en kemur ekki á óvart. Í sumum skólum fær enginn nemandi A í lokaeinkunn, en í öðrum fá hátt í sex af hverjum tíu A eða hæstu einkunn.