„Það var bara vont að kasta“

Erna Sóley Gunnarsdóttir endaði í 22. sæti af 27 keppendum í forkeppni kúluvarpskeppni kvenna á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham á Englandi í dag. Lengsta kast Ernu var 15,72 m, en kasta þurfti 18 metra eða lengra til að komast í úrslit. Sú tólfta og síðasta inn í úrslitin var með kast upp á 17,62 metra, þannig að Ernu vantaði tæpa tvo metra upp á.„Þetta var bara ekki alveg nógu gott. Ég var bara að reyna að stilla mig af í köstunum og reyna að finna meiri kraft og sprengju en ég náði því bara ekki í dag, því miður,“ sagði Erna Sóley eftir að hafa lokið þátttöku á EM í frjálsíþróttum í Birmingham í dag.Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir endaði í 22. sæti á EM í frjálsíþróttum í dag. Hún kemst því ekki í úrslit en hún sagðist hafa fundið fyrir sársauka í hverju kasti í dag veg
„Það var bara vont að kasta“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd