Landhelgisgæslan hefur hafið eftirgrennslan um lítinn skemmtibát, sem siglt var út á Sundin í morgun, þar sem áhöfn hans hefur ekki látið vita af sér. Ekkert bendir til þess að báturinn sé sokkinn en eftirlits- og björgunarflugvélin TF-SIF hefur verið ræst út til að svipast um eftir bátnum.