Vöruskiptahallinn tæpur 41 milljarður í júlí

Vöruviðskipti voru óhagstæð um 40,6 milljarða í síðasta mánuði. Það er 3,5 milljörðum betri niðurstaða en í sama mánuði í fyrra. Verðmæti útflutnings nam 86,5 milljörðum króna í mánuðinum en innflutnings 127,1 milljarði. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum frá Hagstofunni.Síðustu tólf mánuði er samanlagður vöruskiptahalli 441,9 milljarðar króna. Það er 63 milljörðum króna minni halli en mánuðina tólf þar á undan. MIKIL AUKNING Í ÁLÚTFLUTNINGI MILLI ÁRA Í síðasta mánuði jókst verðmæti vöruútflutnings um 14 milljarða frá fyrra ári. Það er fyrst og fremst vegna aukningar í útflutningi á iðnaðarvörum, sérstaklega áli. Útflutningsverðmæti iðnaðarvara jókst um 34% á milli ára.Verðmæti vöruútflutnings hefur dregist lítillega saman síðasta árið. Síðustu tólf mánuði er samanlagt verðmæti útflutnin
Vöruskiptahallinn tæpur 41 milljarður í júlí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd