Fjöldi innlendra kortafærslna nær tvöfaldaðist á Akureyri á bæjarhátíðinni Einni með öllu um verslunarmannahelgina og báru veitingahús, kaffihús og barir veltuna einna helst uppi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Teya, sem bar veltuna saman við kortaveltu um helgar almennt í júlí.Þar segir að innlendum kortafærslum á Akureyri hafi fjölgað um 95% um verslunarmannahelgina og veltan hafi aukist um 68%. Á sama tíma fjölgaði kortafærslum í Reykjavík um 14%, þar sem hátíðin Innipúkinn var haldin. STÆRSTA VERSLUNARMANNAHELGI FRÁ UPPHAFI „Hvernig sem á það er litið var þetta stærsta verslunarmannahelgi Akureyrar sem við getum séð í okkar gögnum frá upphafi,“ segir í tilkynningu Teya.Fjöldi nýrra korta, það er að segja sem voru ekki notuð á Akureyri undanfarnar átta