Félagaskiptaglugginn í Bestu deildinni lokar næstkomandi miðvikudag og síðustu dagarnir gætu mögulega reynst annasamir hjá nokkrum félögum í Bestu deild karla. Sum lið hafa þegar lokið sínum viðskiptum á meðan faxvélin er enn í góðu lagi á skrifstofum annars staðar. Fótbolti.net fer hér yfir stöðuna hjá öllum tólf félögunum: Hvað hefur gerst í glugganum, hvaða sögusagnir eru á kreiki og hvaða stöður þarf helst að styrkja áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.