Það er eðlilegt að fólk hafi skiptar skoðanir á því hvort við eigum að hefja aðildarviðræður við ESB eða ekki. Fólk er með misjafnan bakgrunn, menntun, lífsreynslu og hagsmuni sem móta lífssýn þess. Umræðan fer nú harðnandi og finnst mér leitt að sjá oft á tíðum óþarfa skítkast milli fólks á samskiptamiðlum.