Styrmir byrjað sex leiki í röð - „Einn af mörgum efnilegum strákum"

Styrmir Jóhann Ellertsson er 18 ára Skagamaður sem hefur byrjað síðustu sex leiki ÍA í Bestu deildinni. Hann er fjölhæfur leikmaður sem byrjaði sem hægri bakvörður gegn Þór í gær en færði sig inn á miðjuna þegar Guðmundur Þórarinsson fór meiddur af velli snemma leiks. Áður hafði Styrmir komið inn á í tveimur leikjum í Bestu snemma móts og spilaði gegn Grindavík í bikarnum. Hann átti góðan leik inn á miðjunni í gær og var Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, spurður út í unglinglandsliðsmanninn í viðtali eftir leik.
Styrmir byrjað sex leiki í röð - „Einn af mörgum efnilegum strákum"

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd