Það var stór áfangi þegar ný lestarleið, milli Oulu í Finnlandi og Haparanda í Svíþjóð, hóf göngu sína í morgun. Með því hófust reglulegar lestarsamgöngur milli Finnlands og Svíþjóðar sem höfðu legið niðri frá því lestarleiðin milli Kemi og Haparanda var lögð niður árið 1988. Þá voru lestarvagnarnir orðnir úreltir.Stopular lestarsamgöngur voru í gangi eftir það en frá 1992 hefur engin farþegalest gengið þarna á milli.Það sem hefur meðal annars tafið fyrir að lestarsamgöngum sé komið á að nýju er að breidd lestarteinanna er ekki sú sama í löndunum. Yfirvöld þeirra hafa þó unnið að tæknilegum lausnum og síðustu hindruninni var rutt úr vegi árið 2021 þegar finnska ríkisstjórnin samþykkti rafvæðingu síðasta kaflans á leiðinni.Áætlunarferðir með lest milli Oulu í Finnlandi og Haparanda í Svíþjó