Ekkert símasamband þar sem maðurinn slasaðist – Annar hópur gekk fram á hann

Um klukkan níu í gærkvöldi voru allar björgunarsveitir í Árnessýslu kallaðar út vegna ferðamanns sem hafði slasast á fæti við Háafoss.Maðurinn var einn á ferð og slasaðist í gilinu neðan við fossinn. Þar var ekkert símasamband en annar hópur ferðamanna sem gekk fram á manninn óskaði aðstoðar eftir að hafa fært sig um set og komist í símasamband. Frá þessu greinir Slysavarnafélagið Landsbjörg í tilkynningu.Ekki er vitað hversu langt var síðan maðurinn slasaðist þegar gengið var fram á hann.Ljóst var að það yrði krefjandi verkefni að koma manninum úr gilinu. Því var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar einnig boðuð á vettvang.„Þegar þyrla var komin á staðinn varð ljóst að hið minnsta þyrfti að flytja manninn til svo hægt væri að hífa hann í þyrluna. Þá var ákveðið að boða út undanfara björgunarsv
Ekkert símasamband þar sem maðurinn slasaðist – Annar hópur gekk fram á hann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd