Óvíst um framboð eina flokksins sem er andvígur stríðinu í Úkraínu

Hæstiréttur Rússlands tekur í dag fyrir mál gegn Yabloko-flokknum, eina stjórnmálaflokknum sem talar fyrir því að binda enda á stríðið í Úkraínu. Forsvarsmaður annars stjórnmálaflokks, Rodina-flokksins, höfðar málið og vill að Yabloko verði sviptur leyfi til að bjóða sig fram í þingkosningunum 18. til 20. september. Landskjörstjórn í Rússlandi hefur skráð framboðslista ellefu stjórnmálaflokka. Þeirra á meðal er Yabloko. SAKA FRAMBJÓÐENDUR UM AÐ VERA ÞJÓÐERNISSVIKARA Alexey Zhuravlev, leiðtogi Rodina, segir að þjóðernissvikarar skipi lista Yabloko-flokksins og frambjóðendur hans vinni fyrir Vesturlönd, sem vilji uppgjöf Rússlands. Gennady Zyuganov, leiðtogi Kommúnistaflokksins, hefur einnig gagnrýnt Yabloko. Hann segir frambjóðendur flokksins ekki hafa fordæmt Úkraínu fyrir árásir á Rúss
Óvíst um framboð eina flokksins sem er andvígur stríðinu í Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd