Landhelgisgæslan hefur gert athugasemd við áform um 90 rýma hjúkrunarheimili á Ásbrú vegna hávaða frá herflugi um Keflavíkurflugvöll. Gæslan bendir á að herflug sé ekki tekið með í hljóðvistarútreikningum svæðisins og raunverulegur hávaði geti því verið meiri en kort sýna, en töluleg gögn um hávaða og tíðni herflugs liggja ekki fyrir.