12 voru drepnir og 39 særðust í drónaárás Úkraínuhers á Tatarstan-hérað í Rússlandi í nótt. Einn var drepinn í árás á Belgorod-hérað sem liggur við landamæri ríkjanna. Þetta eru á meðal mannskæðustu árása Úkraínuhers frá upphafi stríðsins. Rússnesk stjórnvöld segjast hafa skotið niður 456 úkraínska dróna í árásum næturinnar. Þær beindust gegn 15 héruðum í Rússlandi auk Krímskaga. Tatarstan-hérað er í meira en 1.000 kílómetra fjarlægð frá landamærunum. Myndefni á samfélagsmiðlum, sem AFP segir óstaðfest, sýnir þykkan, svartan reyk stíga til himins í héraðinu. Það er auðugt af orkuauðlindum og þar er fjöldi olíuhreinsistöðva.Bæði ríki hafa bætt í langdrægar árásir á þessu ári. Það hefur valdið auknum fjölda dauðsfalla meðal almennra borgara að mati Sameinuðu þjóðanna.Fimm voru drepnir í árás