Wilhelm Wessman, einn kunnasti og virtasti frumkvöðull Íslands á sviði hótel- og veitingareksturs, lést mánudaginn 3. ágúst á Landspítalanum. Hann fæddist 2. október 1942 á Höfn í Hornafirði, fimmta af sjö börnum þeirra Elofs Wessman klæðskerameistara og Dagnýjar Wessman húsmóður.