Sérdeilis raunveruleg dúkka talin liðið lík

Afar raunveruleg dúkka í fullri stærð sem fannst í ferðatösku við ástralskan þjóðveg var um stund talin fórnarlamb morðingja. Tveir menn óku í gærkvöld fram á ferðatöskuna þar sem hún lá við þjóðveg nærri þorpinu Oallen um 230 kílómetra suðvestan við stórborgina Sydney.Þeim brá verulega í brún við að sjá innihaldið, síðhærða konu með hring í nefinu og áverka sem bentu til ofbeldis. Snemma í morgun tilkynnti lögregla í Hume-umdæmi að morðrannsókn væri hafin, sem vakti mikla athygli almennings og fjölmiðla.Aðeins örfáum klukkustundum síðar var tilkynnt að rannsókninni væri lokið, réttarmeinarannsókn hefði leitt í ljós að líkamsleifarnar hefðu aldrei verið lifandi. „Innihald töskunnar var afar raunveruleg, fullklædd dúkka með hring í nefi og tilbúnar skrámur og marbletti,“ segir í tilkynningu
Sérdeilis raunveruleg dúkka talin liðið lík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd