Kona um áttrætt lét lífið í skógareldunum í Bresku Kólumbíu

Kona um áttrætt lét lífið á föstudag þegar hún reyndi að flýja heimili sitt undan skógareldum sem geisa í kanadíska fylkinu Bresku Kólumbíu. Lögregluyfirvöld segja beinlínis mega rekja dauða konunnar til eldanna. Yfir tuttugu þúsund hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna skógareldanna sem kviknuðu á föstudag nærri Okanagan-vatni og hafa síðan breiðst hratt út. Yfir 136 ferkílómetrar skóglendis hafa orðið eldunum að bráð. Það mun vera til jafns við heildarflatarmál Akureyrarkaupstaðar að Hrísey og Grímsey meðtöldum. Fjöldi húsa hefur eyðilagst í eldunum og oft hefur þurft að grípa til örþrifaráða til að bjarga fólki sem nánast hefur orðið innlyksa í eldhafinu. Bændur eiga fullt í fangi með að bjarga bústofni og margir þeirra hafa merkt dýrin sérstaklega til að geta borið kennsl á þau
Kona um áttrætt lét lífið í skógareldunum í Bresku Kólumbíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd