Sex voru drepnir í drónaárás Úkraínuhers á rússnesku borgina Belgorod í gær. Tugir særðust samkvæmt upplýsingum sem Reuters hefur frá rússneskum yfirvöldum og björgunarliði.Úkraínsk fallbyssa.EPA / Maria SenovillaHéraðsstjóri Belgorod hafði áður tilkynnt að þrír hefðu látið lífið en lík þriggja til viðbótar fundust í rústum brunnins íbúðarhúss.Héraðsstjórinn sagði tvö hús hafa brunnið auk þess sem nokkur til viðbótar skemmdust í árásinni. Rússneska varnarmálaráðuneytið segir herinn hafa skotið niður yfir 150 dróna yfir Evrópuhluta Rússlands, á Krímskaga, Svartahafi og á Azovhafi.