Ísraelsher girðir fyrir aðgang utanaðkomandi að þorpi á Vesturbakkanum til að stemma stigu við ofbeldi

Ísraelsher hefur girt fyrir aðgang annarra en íbúa þorpsins Taybeh á Vesturbakkanum. Þorpið er ein af fáum byggðum kristinna Palestínumanna þar um slóðir.Tveir íbúar Taybeh við brunnið bílflak eftir árás landtökufólks í sumar.EPA / ALAA BADARNEHReuters hefur eftir talsmanni hersins að tilgangurinn sé að stemma stigu við auknu ofbeldi ísraelsks landtökufólks í garð Palestínumanna um gervallan Vesturbakkann.Áréttað er að þorpið sé aðeins lokað Ísraelsmönnum. Alþjóðasamfélagið hefur brugðist við ofbeldinu, til að mynda setti Evrópusambandið í maí viðskiptaþvinganir á landtökufólk og stofnanir sem það ástundar.
Ísraelsher girðir fyrir aðgang utanaðkomandi að þorpi á Vesturbakkanum til að stemma stigu við ofbeldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd