Burnham heitir úrræðum til að losa fólk úr „áskriftargildrum“

Breski forsætisráðherrann Andy Burnham heitir því að taka hart á fyrirtækjum sem bjóða fólki áskriftir sem þrautin þyngri reynist að losna við og eins að takast á við gerviafslætti ýmis konar.Í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherra segir að þetta tengist umfangsmeiri aðgerðum til að lækka framfærslukostnað almennings.Burnham sjálfur sagði í yfirlýsingu að fólk væri búið að fá sig fullsatt af gylliboðum um áskriftir sem endurnýjast sífellt sjálfkrafa og hækki sífellt. Ríkisstjórnin myndi sjá til þess að jafn auðvelt yrði að segja upp áskrift og hefja hana.Breskir neytendur verja 1,6 milljörðum punda í áskriftir sem þeir raunverulega vilja alls ekki segir í tilkynningu skrifstofu Burnhams. Það er jafnvirði 267 milljarða króna. Nýjar reglur ganga í gildi í janúar sem neyða fyrirtæki til
Burnham heitir úrræðum til að losa fólk úr „áskriftargildrum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd