Mikinn óþef hefur lagt yfir Boyle Heights-hverfið í Los Angeles í Bandaríkjunum undanfarna daga. Óþefinn má rekja til matvæla sem geymd voru í vöruhúsi sem brann til kaldra kola um miðjan júní. Þrjátíu og níu þúsund tonn matvæla voru geymd í húsinu, þar á meðal nautakjöt, svínakjöt, kjúklingur og sjávarfang. Hreinsunarstarf eftir brunann hefur tekið lengri tíma en áætlað var.Kona sem vinnur í hverfinu segir lyktina svo vonda að mann langi til að kasta upp og líkir henni við óþefinn af rotnandi líki. Par sem rekur kaffihús nálægt vöruhúsinu segir viðskipti hafa hríðfallið, ekki síst vegna ágangs flugna.Rannsókn á vegum borgarinnar hefur sýnt að rotnandi matarleifarnar verði til þess að flugum sem sýkt geti opin sár fjölgi. Þá hafa íbúar séð stórar rottur í hverfinu og segja að gildrur sem k