Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi í Kópavogi í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að maðurinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Kópavogi í dag hafi látist á Landspítalanum síðdegis.Einn var handtekinn fljótlega eftir að málið kom upp og nokkrir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum mbl.is er þar átt við mikinn viðbúnað lögreglu í verslunarkjarna í Vogahverfinu í Reykjavík. Vísir greindi frá. Minnst sex lögreglubílar og einn sérsveitarmaður hafi verið á vettvangi.Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraliðs sinnti útkallinu í Kópavogi um klukkan þrjú í dag. Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu, sem staðfesti að einn hafi verið fluttur á slysadeild.Í tilkynningu lögreglunnar segir að rannsókn málsins