Veðurspáin meðan á sólmyrkvanum næstkomandi miðvikudag stendur er tekin að skýrast. Að sögn Theodórs Freys Hervarssonar veðurfræðings sýna flest líkön svipaða niðurstöðu.„Það er lægð hér rétt suður af Reykjanesi, skýjað á mestu landinu og rigning víða. Náttúran er ekki með okkur í liði þegar kemur að sólmyrkvanum,“ segir Theodór.Ef einhver staður er bestur til að njóta sólmyrkvans segir hann að útlit sé fyrir að það verði þurrt á norðvesturhorninu. Enn megi sjá breytingar milli keyrslna á líkönunum. Veðurspáin eigi því eftir að skýrast enn frekar.