Angel Aguirre, fyrrverandi ríkisstjóri Guerrero-ríkis í Mexíkó, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa átt við sönnunargögn tengd rannsókn á hvarfi 43 háskólastúdenta þar fyrir tólf árum. Saksóknari segir að ríkisstjórinn hafi fyrirskipað bæði hátt- og lægrasettum embættismönnum að fela gögnin, sem voru hljóðupptökur. Slík yfirhylming sé langt í frá einsdæmi heldur hluti víðtækrar spillingar meðal leiðtoga Guerrero-ríkis. Aguirre lét sjálfviljugur af embætti 2014 og hefur ekki sinnt opinberu embætti síðan. Fulltrúar héraðslögreglu höfðu í september 2014 afskipti af stúdentunum í bænum Iguala eftir að þeir tóku þátt í mótmælum í höfuðborginni gegn stefnu menntamálayfirvalda í ríkinu. Talið er að minnst sex þeirra hafi fallið í skotbardaga en 43 hurfu sporlaust. Grunur hefur lengi leikið