FH úr fallsæti í fyrsta sinn í 109 daga

FH er komið úr fallsæti í Bestu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn í 109 daga eftir 0-1 sigur gegn KA. FH skýst upp fyrir KA úr fallsæti og nú eru bæði Akureyrarliðin, KA og Þór, í fallsæti.Ísak Óli Ólafsson skoraði eina mark leiksins á 17. mínútu eftir hornspyrnu Kjartans Kára Halldórssonar.FH var í 10. sæti fyrstu tvær umferðirnar í sumar og fór svo í fallsæti 22. apríl eftir þriðju umferð deildarinnar. Þar hefur liðið verið þangað til nú.FH hefur snúið við blaðinu og er þriðja besta lið deildarinnar ef miðað er við síðustu fimm leiki. ÁRANGUR LIÐA SÍÐUSTU FIMM LEIKI: 1. Fram - unnir: 3 - jafntefli: 2 - töp: 0 - markatala: +7 - stig: 11 2. Breiðablik - unnir: 3 - jafntefli: 1 - töp: 1 - markatala: +2 - stig: 10 3. FH- unnir: 2 - jafntefli: 3 - töp: 0 - markatala: +3 - stig: 9
FH úr fallsæti í fyrsta sinn í 109 daga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd