Í myndbandi sem dreift hefur verið undanfarna daga á samfélagsmiðlum er því haldið fram að Friedrich Merz Þýskalandskanslari íhugi að segja af sér. Í myndbandinu er vísað í Deutsche Welle og Handelsblatt sem báðir eru virtir fjölmiðlar í Þýskalandi. Báðir þessir miðlar segja að myndbandið sé að öllu leyti falsað en eins og oft áður er sannleikskorn í áróðrinum.Þýskir fjölmiðlar hafa sagt frá umræðu um að Merz ætti að íhuga að láta öðrum manni eftir stól kanslara. Sú umræða hefur oftar en ekki snúist um manninn sem nefndur er í myndbandinu, Hendrik Wüst, sem er forsætisráðherra í Nordrhein-Westfalen. Allt þetta hefur ítrekað verið borið til baka. EKKI EINA DÆMIÐ Myndbandið um Merz er hins vegar aðeins ein af fjölmörgum falsfréttum sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum í Þýskalandi að