Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi

Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi í Kópavogi í dag. Þetta herma heimildir fréttastofu.Í tilkynningu frá lögreglu segir að einn hafi verið handtekinn vegna alvarlegrar líkamsárásar í Kópavogi um klukkan þrjú síðdegis. Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraliðs sinnti útkallinu um klukkan þrjú í dag.Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu, sem staðfesti að einn hafi verið fluttur á slysadeild.Vísir greinir frá því að mikill viðbúnaður lögreglu hafi verið við verslunarkjarna í Skeiðarvogi í Reykjavík. Minnst sex lögreglubílar og einn sérsveitarmaður hafi verið á vettvangi. Upplýsingafulltrúi lögreglu vildi ekki tjá sig um málið eða hvort það tengdist aðgerðum lögreglu á Kársnesi.Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd