Aldrei hafa fleiri skemmtiferðaskip verið innan íslenskrar lögsögu en verða á miðvikudag þegar almyrki verður á sólu. Aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni segir mikinn viðbúnað hjá öllum viðbragðsaðilum.Þrjátíu og eitt skemmtiferðaskip hefur boðað komu sína til Íslands á miðvikudaginn, sem er um þrefalt fleiri skip en almennt eru úti fyrir ströndum Íslands þegar mest er á sumrin. Um 53 þúsund farþegar og skipsáhafnir verða um borð í skipunum og má áætla að þilför þeirra verði stútfull af fólki sem vilji berja sólmyrkvann augum. SKIPIN HAFA TVENS KONAR FORSKOT „Þetta er svona barátta um sekúndur og við vitum það að sólmyrkvinn er sterkastur eða lengstur vestur af landinu þannig að skipin hafa tvenns konar forskot. Í fyrsta lagi komast þau vestar þannig að þau hafa sólmyrkvann aðeins len