Nokkrir urðu fyrir skoti í árás í Holbæk í Danmörku, um sextíu kílómetra frá Kaupmannahöfn. Lögregla greinir frá því að árásarmaðurinn gangi enn laus. Danska ríkisútvarpið segir að árásin hafi verið gerð í félagslegu húsnæði í borginni. Samkvæmt upplýsingum miðilsins er enginn látinn. Christina Krzyrosiak, borgarstjóri Holbæk, greinir frá því á Facebook að lögregla telji skotárásina tengjast uppgjöri glæðagengja.