Líkamsárás í Kópavogi: Einn fluttur á slysadeild

Einn var fluttur á slysadeild eftir líkamsárás í Kópavogi í dag. Fjölmennt lið lögreglu og sjúkralið sinnti útkallinu. Einn hefur verið handtekinn í tengslum við árásina.Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu, sem staðfestir að einn hafi verið fluttur á slysadeild en vísaði að öðru leyti á lögreglu. Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir einn hafa verið handtekinn vegna líkamsárásar í Kópavogi. Lögreglan gefur ekki upp frekari upplýsingar að svo stöddu.Samkvæmt heimildum fréttastofu varð árásin á Kársnesi. Engar upplýsingar hafa fengist um líðan þess sem varð fyrir árásinni.
Líkamsárás í Kópavogi: Einn fluttur á slysadeild

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd