„Það er ekki hægt að mætast í miðjunni þegar kemur að lífi fólks“

Sindri Freyja Bjarnabur, sem oft er kölluð Sindri Sparkle, segist alltaf finnast hún þurfa að gera lítið úr ofbeldi sem hún verður fyrir. Hópur ungra manna reyndi að kasta steini í hana þegar hún var á leið úr gleðigöngunni í gær.„Ég er náttúrulega grínisti, þannig að þegar eitthvað svona kemur upp þá hef ég alltaf bara reynt að finna húmorinn í því. En á sama tíma þá er ég náttúrulega bara aftur og aftur að muna, já, þetta var bara hálfur metri og já, hefði getað farið miklu verr,“ segir Sindri Freyja sem notar bæði fornöfnin hún og hán. SÁ STEININN SPLUNDRAST Hún og maðurinn hennar fóru snemma heim úr gleðigöngunni í gær og stoppuðu á leiðinni fyrir framan gamla heimilið sitt í Sæmundargötu. Sindri segist hafa verið í eigin heimi að hugsa um tíma þeirra saman í íbúðinni.„Þegar ég allt
„Það er ekki hægt að mætast í miðjunni þegar kemur að lífi fólks“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd