Borgarísjaka hefur rekið á Vestfirði, fyrr á árinu en oft áður. Sjá má ísjakann úti fyrir Norðurfirði, um fjóra kílómetra vestur af veðurstöðinni í Litlu-Ávík.Jón Guðbjörn Guðjónsson veðurathugunarmaður kom auga á ísjakann í gærkvöld. Hann segir að einnig sé að finna jakabrot víða í Húnaflóa.Samkvæmt Jóni er borgarísjakinn sæmilega stór. Hann sé jafnframt óvenju snemma á ferðinni. Borgarísjakar séu yfirleitt sjáanlegir seint í ágúst og jafnvel í september.