Fjárfestingafélag Þorvalds Gissurarsonar, einn umsvifamesti byggingarverktaki landsins, hefur á fáeinum mánuðum selt mikinn meirihluta allra bréfa sinna í Stoðum. Viðskipti með hlutabréf Stoða, sem hafa sett stefnuna á skráningu í Kauphöll, hafa aukist nokkuð að undanförnu en tveir fjárfestar hafa þar einkum verið á söluhliðinni.